Falleg vetrarstilla

Hreyfing: 5,7 km útihlaup 100magaæfingar, 21 armbeygja og nokkrar lyftur með lóð
Matur: Bleikja grænmeti

Dreif mig út að hlaupa eftir hádegi í dag á milli lærdóms. Hlaupaveður eins og það gerist best á veturna, falleg vetrarstilla í sól - logni og við frostmark. Það er alltaf frekar erfitt að hlaupa eftir frí, nú hef ég hvílt í 2 daga og það telur strax. Á morgun stefni ég á interval æfingu inni og svo útihlaup aftur á miðvikudaginn. 

Í dag stefni ég á að klára þær 5 umfjallanir sem ég þarf að skila í UMS (á 1 eftir) og byrja svo á ritgerðinni á morgun þriðjudag, hana ætla ég að klára í síðasta lagi föstudaginn 12.feb. því svo skal byrja á nýrri í vikunni þar á eftir. 


Helgarfrí

Hreyfing: þrektími og hlaup á eftir
Matur: Grillaður þorskur m/gráðosti + grænmeti

Þrektíminn hjá Öbbu í morgun tók bara þrælmikið á, þetta var samt frekar rólegur tími en talsverð þreyta í líkamanum. Samt náði ég að svitna alveg heilmikið þannig að brennslan er í góðu lagi, fór á hlaupabretti á eftir og hljóp kílómeter á hraðanum 12 og 100 magaæfingar á eftir, pottur og kaffispjall. 

Nú er að harka af sér 1-2 umfjallanir á greinum fyrir skólann, búin með 2 af 5 sem skila á fyrir 15.mars. Svo er það leikhús í kvöld 39 þrep, það verður gaman enda fær sýningin góða dóma.  Fimleikar hjá snáðanum á morgun oghugsanlega skreppum við eitthvað í fjallið á skíði.


Crossfit á spretti

Hreyfing: 5 hringir af eftirtöldu: 400 sprettir, 12 magaæfingar,10 burpes, 8 spice
Matur: síðasti afgangurinn af bakaða fisknum + grænm.súpa og rófa

Næst síðasti tíminn af Crossfitinu og nú get ég slakað með góðri samvisku að hafa ekki eytt í vitleysu þar sem ég klára námskeiðið á föstudaginn. Það sem hefur vantað uppá hjá mér er mjög líklega heimaverkefnin sem á að gera dagana á milli crossfit tíma og ég tók ekki einn einasta enda hafði ég ekki einn einasta tíma til þess fyrir jól. Nú er þetta allt að koma, vigtin að síga af stað niður og ég að styrkjast. Crossfitæfingar dagsins hljómuðu uppá 5x400 metra spretti á bretti (13,5-13,5-13,5-13,5-15,5), 5x12 magaæfingar alveg upp og halda í eyrun, 10 burpes (það er að hoppa niður í armbeygjulyftu og fara í armbeygju, og hoppa svo upp með hendur upp), 8 spice er að taka stöng með lóðum og skuttla henni hratt frá hné, rétta alveg úr sér og svo snöggt rétta úr höndum fyrir ofan höfuð). Þetta var alveg þokkalega erfitt og var ég með nokkuð harðan keppinaut í tímanum sem hélt mér við efnið. Þetta er því 2. skiptið í þessari viku sem ég tek spretti, ekkert smá ánægð ætla að halda þessu við svo ég geti bætt þrekið og farið að hlaupa af einhvejru viti. Á morgun hef ég hug á því að hafa hvíldardag, svo er síðasti crossfit tíminn á föstudag þá verður farið yfir æfingarnar og teknir eins margir hringir og hægt er á 20 mínútum.


Hlaupið í frosthörkunni

Hreyfing: 8 km útihlaup
Matur: Bakaður fiskur + grænmeti

Fórum út að skokka með Elmu og fylgisystrum í morgun, það var bísna mikil frostharka eða um -9 enda beit þorrafrostið í andlitið á manni. Fór þetta á rúmum 43 mín. sem er bara ágætt. Þessi hópur fer sirka einu sinni í viku út að hlaupa og hentar það alveg frábærlega vel til að byrja með, svo getur vel verið að bætt verði við æfingum með vorinu. Síðan eru að interval æfingarnar á bretti einu sinni í viku með blandi af öðru. Á morgun er svo annað hvort crossfit eða leikfimi, hvíld á fimmtudag og croossfit á föstudag.


Sprellað og spáð

Hreyfing: Dans, 4 hringir af eftirfarandi 300m. sprettir, róður 400m, 15 armbeygjur
Matur: Þorramatur og einhver hollusta inná milli

Mætti eldspræk í ræktina í morgun, stefndi á crossfit en eitthvað var snáðakútur syfjaður og þreyttur og því fauk crossfit tíminn útum gluggann enda ég svo sem búin að fara í þennan tíma áður fyrir áramót. Við Unnsteinn tókum því crossfitæfingar uppí æfingasal sem samanstóðu af 300 metra spretti á bretti á hraðanum 14,5 - 15,5 - 14,5 - 14,5, 400m. róðri, og 15 armbeygjum - Fórum 4 svona hringi. Ég er ferlega ánægð að vera að geta farið á 15,5 á brettinu og finnst ég vera að styrkjast, eins eru armbeygjurnar að koma sterkar inn aftur. Tók svo 120 góðar magaæfingar og nokkrar bak. Á morgun er svo stefnt að morgunhlaupi, farin er af stað hópur undir leiðsögn okkar frábæra og drífandi kennara Elmu úr crossfittinu. Þetta er hópur sem mér skillst að fari á ágætishraða en bara magnað, eru nýbyrjuð að æfa og ætlum við að prufa og sjá hvort þetta sé eitthvað fyrir okkur. Langar svo að komast í hlaupaform aftur það gefur manni svo mikið andlega og líkamlega að hlaupa.

Frábær helgi að baki, eyddi miklum tíma með snáðanum aðallega í að horfa á handbolta sem hann lifir sig inní að miklum móð. Í leiknum á móti frökkum lét ég hann færa mér fréttir að stöðunni og hverngi gengi, hafði varla taugar í annað en skúraði af þeim mun meiri ákafa, þurrkaði af og þvoði 4 þvottavélar. Af öðrum hlutum er það að frétta að ég er að klára vinnuna og við tekur brjáluð vinna í skólanum, nóg að gera á öllum vígstöðum, afmæli snáðans á næstu grösum, suðurferð, afmælið mitt einhvern tímann með vorinu.


Góð vika

Hreyfing: Crossfit + 6 km hlaup í gær
Matur: Grænmetissúpa, rauðrófusafi, lasagna

Hljóp dásamlegt morgunhlaup með Unnsteini á fimmtudagsmorgun, það var bísna mikil glæra á gangstéttunum en þó ekki svo hált enda sandur yfir að mestu. Veðrið var afsaklega milt og gott og við tókum 6,3 km á um 40mín. sirka 6-7 tempói. Ég fékk tilsögn í hlaupatækni og ætla að reyna að tileinka mér hana, er að eyða mikilli orku í að liggja of mikið fram. Þetta var alveg magnað að fá svona góða útiveru og hreyfingu, reyni að gera þetta a.m.k. einu sinni í viku með öðru. Svo var crossfit í morgun, æfingarnar hljóðuð uppá 7 burpees, 10 clean, 40 sipp, og standa á höndum 30sek. , fara eins marga svona hringi og við gátumá 20 mín. ég fór 7 hringi. Er ánægð með hreyfingu vikunnar og stefni á annað eins í næstu viku, góða helgi.


Komin af stað

Hreyfing: Crossfit í morgun - 2x 400m hlaup, 5x20 upphífingar,5x20 armpressur,5x15 réttstöðulyftur,5x20 ketilbjöllusveiflur.
Matur: Grænmeti og Lifur

Gleðilegt árið og takk fyrir það gamla. Eftir smá hlé held ég áfram að skrifa hér á bloggið aðallega til að fylgjast með eigin hreyfingu, útivist og mataræði. Byrjaði af krafti strax fyrstu vikuna í janúar og tók svona melló á því fyrstu 2 vikurnar. Átti eftir að klára Crossfit námskeiðið þar sem ég komst ekki í alla tímana fyrir jól. Fór svo að taka vel á því í vikunni 18-22.jan. og æfði 4x í viku, hljóp sirka 12 km alls, fór í tíma í ræktinni og tók vel á því. Í þessari viku tók ég svo interail spretti 6x300 metra og hvíldi í mínútu inná milli, crossfit í morgun, og stefni svo á sirka 7km útihlaup á morgun og crossfit á föstudaginn. Einnig er ég að herða mig í mataræðinu, stefni á að hafa lifur 1x í matinn í sirka 1-2 mánuði, sneiða hjá sælgæti og áfengi að mestu og auka brennsluna með því að borða mikið grænmeti og drekka vatn, borða 1 appelsínu á milli morgunverðar og hádegis, passa uppá að borða einhvern próteinmat í hádegi og kvöld, mest fisk og kjúkling. Eins er ég að prufa að drekka rauðrófusafa á undan kvöldmáltíðum og sjá hvert það leiðir mig. Mér líður alltaf vel þegar ég get tekið mig svona á s.s. í hreyfingu og mataræði, það hefur ekki verið eins markvisst og mundi vilja að það væri á síðustu önn, ég var í talsvert mikilli vinnu, skóla og með barn og hreinlega hafði ekki orku í hreyfingu sem stuðlaði að árangri, hins vegar hreyfði ég mig alltaf eitthvað og hélt mér í mellóformi. Nú horfi svo á að ég verði atvinnulaus á þessari önn nema eitthvað mikið gerist, það verður brjálað að gera í skólanum og alltaf nóg um að vera í uppeldinu og félagsmálunum. Sé frammá meiri tíma til að rækta líkama og sál þó svo að tekjurnar séu ekki uppá marga fiska, þá er bara að herða við sig þar líka og nýta matinn meira, baka og klára það sem er í skápunum. Hlakka til að takast á við allt þetta.


Snilldin ein

Hreyfing: Cross-fit - rokkar

Með smá veikinda pásu í síðustu viku hef ég mætt í 2 cross-fit tíma í þessari viku og þeir hafa bara verið snilldin ein. Viðurkenni samt að eftir fyrsta tímann sem var í síðustu viku var ég lurkum laminn hreinlega. Við fórum 100 armbeygjur, 100 ketilbjöllusveiflur, 100 upphífingar og 100 hnébeygjur, ekki allt í einu samt heldur 25 í senn. Upphífingarnar voru langverstar, eitthvað gerðist ég teygði ekki nógu mikið á eða eitthvað a.m.k. fékk ég streng í axlir og háls sem versnaði með degi hverjum. Snáðinn veiktist og ég komst ekki í næsta skipti á eftir, síðan fór ég í nudd og þá bara versnaði þetta. Ég mætti með stífan háls í laufabrauð fjölskyldunnar og náði að standa vaktina nokkurn veginn slysalaust, hringdi í nuddarann sem ráðlagði mér snilldarlausnir sem virkuðu + bólgueyðandi. Í þessari viku mætti ég svo fersk í tímann og hafði næga orku og úthald, nú var þetta orðið gaman og ég alveg í skýjunum yfir að hafa skráð mig á þetta námskeið því þetta er virkilega að styrkja mig. 

Snáðinn minn er orðin frískur og hressari en nokkru sinni, hann segir hverja gullnu setninguna á fætur annarri, snilldin ein.  Í morgun þegar hann var að borða morgunverðinn sinn ætlaði ég að þeyta rjóma á köku eina sem ég huggðist mæta með á miðvikudags-jóla-huggó-eftirleikfimis-kaffidúll. Tók skál og skál og hellti rjómanu í, þá gall við í mínum "mamma, ætlar þú að fara að hræra í gubbuskálinni okkar" ómægod, já elskan haltu bara áfram að borða.  Þetta er engill sem kemur fram hreinn og beinn og skefur ekki utan af því, vonandi verður hann, hann sjálfur alla ævi.

 


Þrek og púl

Hreyfing: Þrek þrisvar í viku, og tekið á því sko Smile

Nú fer að koma í mig fjallaþrá, þegar bilið fer að lengjast frá síðustu fjallaferð fer að koma í mig órói. Það kemur að því að inn detti ferð á fjall, nógu gott er nú alltaf blessað veðrið hér og fjöllinn skarta sínu fegursta fallega hvít.  En með því að stunda reglulega þrektíma þetta þrisvar í viku held ég mér við og þetta eru algjörlega frábærir tímar og félagsskapurinn alveg einstakur. Skemmtilegur hópur sem nær vel saman, eftir tíma sitjum við oft saman í kaffistofunni og spjöllum um heima og geima. Þarna eru margar mjög fjörugar kellur sem lenda í hinum ýmsu ævintýrum, karlarnir eru algjörlega í minnihluta en það er vel passað uppá þá enda er góð blanda alltaf best.  Þar sem ég hef nú verið í þessu þreki og finnst það ágætt hef ég samt fundið að ég vill eitthvað meira, einhverja áskorun sem ég get boðið mínum dýrmæta líkama uppá og veit að hann ræður við. Þannig að ég stökk til um daginn og skráði mig í Cross-Fit, það munu vera æfingar sem taka mest á þoli og þreki og á maður að koma út úr 4 vikna námskeiði þar sterkari, flottari og frísklegri. Mér líst vel á þetta því þetta virðist ekki vera einhver svona herkvaðning en það er samt vel tekið á og farið í allar æfingarnar markvisst og maður sér fólkið vera alveg að kikna þarna á köflum. En mín trú er að ég komi sterkari út úr þessu líkamlega og andlega og hlakka ég því til þess að byrja í næstu viku. Fjallgöngur með þessu í bland grunar mig að sé afar góður hreyfingakokteill. Svo er aldrei að vita nema ég taki þátt í þrekmeistaranum hérna á Akureyri í apríl 2010, taki svo laugaveginn í júlí og hvað fleira sem býðst. Þetta er yndislegt líf.

 

Á fjallið ég fór ...

Hreyfing: þrek 3x í viku, + yoga,dans og fjallganga

 Þrekið þrisvar í viku er að að bjarga hreyfingu minni þrátt fyrir að það komi alls ekki í staðinn fyrir hjól, fjallgöngur og hlaup, en dugar á meðan annað kemur í ljós. Ég er afar þakklát fyrir að geta þó farið þetta og haft ráð á því. Svo koma alltaf auka æfingar inná milli sem eru bónus og krydda tilveruna. Helgina 8.-11.okt. gat ég leyft mér meira en venjulega. Áætluð fjallganga fór fyrir bímeð hinum frábæru fjallageitum í staðinn fór ég í tvo tíma á Bjargi, Body balance sem er samblanda af yoga, tai chi og pilates og síðan í Body jam sem er dans þrek einhverskonar, a.m.k. það næsta sem ég hef komist í Salsa síðan ég bjó á Spáni.  Um kvöldið hittust svo fjallageiturnar í mat og borðuðum og spjölluðum langt frammeftir og fórum svo á ball með Eurobandinu sem ég vissi ekki einu sinni að væri statt í bænum. Það var eiginlega það skemmtilegasta ball sem ég hef farið á lengi, ótrúlega skemmtileg þessi eurovisionlög. Ég fékk a.m.k. næga hreyfingu þennan daginn því ég gekk líka heim með einni fjallageitinni heila 3 km á mettíma og verð ég að viðurkenna að ég var pínu þreytt daginn eftir og með strengi hér og þar. Vikan 12. - 16.okt. var svo svipuð og venjulega með þreki mánudag og miðvikudag nema á föstudaginn þá fór ég í langþráða fjallgöngu enda í fríi þennan dag. Bunga og Strýta Spáð var hita en smá roki að suðvestan og var stefnan sett á Hlíðarfjall og næstu tinda sem náðust innan vissra tímamarka því ég varð að komast í byggð fyrir kl. 16 til að ná í snáðann á leikskóla. Þetta var þvílíkt brilliant ferð og allt gekk upp, kl. 09:50 var lagt af stað og veðrið var alveg einstakt hlýtt og gott og gekk uppgangan mjög vel ég varð reyndar frekar móð á göngunni og kenndi þar um hjólaleysi og öðru. Þetta gekk samt allt saman vel, það sást yfir á Herðubreið og Búrfell og uppá Hlíðarfjall (1200m) var farið á sirka 1,5 kl. tíma og svo á Blátopp (1290m) sem er næsta fjall við og var þar um kl. 11:50 sem var tveim tímum frá upphafi fjallgöngu. Blátoppur Það var varla stætt á Blátoppi og ekki óhætt að fara lengra eða á Bungu en það hefði verið gaman. Skynsamlegt var samt að fara ekki lengra að sinni, nestisstopp var norð-austan í Blátoppi þar var logn og sólin allt um kring. Síðan var stokkið af stað niður og var hið besta veður orðið neðarlega í Hlíðarfjallinu í suð-austur hluta fjallsins sól, logn og hiti. Komið í bílinn um kl. 13:30 og ferðin tók því rétt rúma 3,5 tíma, heildarlengd um 6 km og hækkun um 800 metrar. Rosalega var ég eitthvað sátt við þessa ferð, bæði það að fara loksins á fjall og líka bara að finna að þrekið er til staðar og góð líkamleg þreyta á eftir. Ég finn sjálfa mig til fjalla

Kerling og fjöllin hennar


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband